Nordic Life Science Days 2027 🇩🇰
Nordic Life Science Days (NLS Days) er einn stærsti tengslaviðburður fyrir fyrirtæki í lífvísindum á Norðurlöndum þar sem tækifæri gefst á að tengjast fjárfestum og mögulegum samstarfsaðilum á ýmsum sviðum. Viðburðurinn er á vegum SwedenBIO og dregur að sér stjórnendur lyfja-, líftækni- og heilbrigðistæknifyrirtækja ásamt fjárfestum.
NLS Days 2027 fer fram dagana 29.–30. september 2027 í Kaupmannahöfn. Nánari staðsetning verður kynnt síðar.
Á viðburðinum má búast við:
- Skipulögðum fundum (partnering) við fjárfesta, lyfjafyrirtæki og mögulega samstarfsaðila
- Fyrirlestrum og pallborðum um það helsta í lífvísindum
- Sýningarsvæði og kynningum fyrirtækja
- Alþjóðlegum sendinefndum og tengslamyndun þvert á Norðurlöndin
KLAK var á staðnum árið 2026 og bauð sínu tengslaneti afsláttarkóða á viðburðinn.
🌐 Heimasíða: https://nlsdays.com

