Englafjárfestingar fyrir frumkvöðla
Englafjárfestingar fyrir frumkvöðla
Föstudaginn 27. nóvember kl. 11:30–13:00 | Vefnámskeið | Frítt
Ertu að byggja upp sprotafyrirtæki og velta fyrir þér hvenær englafjárfestar koma inn í myndina, hvað þeir horfa á og hvernig best er að undirbúa sig fyrir samtal við fjárfesta?
IceBAN og Kría bjóða frumkvöðlum á ókeypis vefnámskeið þar sem farið verður yfir englafjárfestingar á hagnýtan og aðgengilegan hátt.
Við skoðum meðal annars:
• hvernig fjármögnunarþarfir fyrirtækja breytast eftir því sem þau þróast
• hvar englafjárfestar koma inn í fjármögnunarferlið
• hvað englar horfa helst til þegar þeir meta fjárfestingartækifæri
• hvernig Kría vinnur með englafjárfestum og öðrum fjárfestum
• hvernig IceBAN-vettvangurinn virkar fyrir sprotafyrirtæki og hvernig fyrirtæki geta komist í samband við engla
Dagskrá
11:30–11:45 – Opnun: Fjármögnunarferli sprotafyrirtækja
Svava Björk Ólafsdóttir, IceBAN
11:45–12:10 – Englafjárfestingar á mannamáli
Jón Ingi Bergsteinsson, IceBAN
12:10–12:30 – Kría og samstarf við englafjárfesta
Valdimar Halldórsson, Kría
12:30–12:40 – Hvernig virkar IceBAN fyrir sprotafyrirtæki?
Svava Björk Ólafsdóttir, IceBAN
12:40–13:00 – Spurningar og umræður
Við tökum góðan tíma í lokin svo þátttakendur fái svör við því sem brennur helst á þeim varðandi englafjármögnun og næstu skref.
Námskeiðið er ætlað frumkvöðlum og teymum sem vilja skilja betur hvernig englafjárfestingar virka og hvernig þau geta undirbúið sig fyrir fjármögnun.
Þátttaka er ókeypis, en skráning er nauðsynleg.


