Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Gervigreind: Hver mótar framtíðina?
Háskólinn á Akureyri

Gervigreind: Hver mótar framtíðina?

25. nóvember kl. 09:00 - kl. 11:00

Gervigreind: Hver mótar framtíðina?

Háskólar, rannsóknir, nýsköpun og samfélag á tímum gervigreindar

Hvernig mun gervigreind breyta því hvernig við lærum, störfum, stundum rannsóknir og sköpum ný verðmæti? Og hver ákveður hvernig við nýtum hana?

Háskólinn á Akureyri býður öllum áhugasömum til samtals um gervigreind og framtíðina miðvikudaginn 25. nóvember kl. 9–11 í Hátíðarsal háskólans.

25. nóvember 2026 | kl. 9–11

Hátíðarsalur Háskólans á Akureyri

Skráning: https://www.unak.is/is/skraning-gervigreind

Frá stóru myndinni til aðgerða

Gervigreind er þegar farin að breyta vinnubrögðum, skapa ný tækifæri og ögra hugmyndum okkar um menntun, þekkingu og störf. En hversu vel erum við undirbúin og hvernig getum við nýtt tækifærin sem fram undan eru?

Hjálmar Gíslason, frumkvöðull og fjárfestir sem leiddi starfshóp stjórnvalda um gervigreind, flytur erindi um niðurstöður starfshópsins og áhrif gervigreindar á menntun, rannsóknir, nýsköpun og samfélagið.

Að erindinu loknu fara fram pallborðsumræður með þátttöku:

• Hjálmars Gíslasonar – tækniþróun, nýsköpun og framtíðarsýn

• Áslaugar Ásgeirsdóttur, rektors Háskólans á Akureyri – framtíð háskóla, kennslu og rannsókna

• Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, bæjarstjóra Akureyrar – tækifæri fyrir atvinnulíf, opinbera þjónustu og samfélagið

Sesselja I. Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Drift EA, stýrir pallborðsumræðunum og leiðir samtalið frá stóru spurningunum yfir í raunveruleg tækifæri og næstu skref.

Fundarstjóri er Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri Háskólans á Akureyri.

Gestum gefst einnig kostur á að beina spurningum til þátttakenda.

Viðburður fyrir öll sem vilja taka þátt í að móta framtíðina!

Hvort sem þú starfar við menntun, rannsóknir, nýsköpun eða í atvinnulífinu, eða vilt einfaldlega forvitnast meira um áhrif gervigreindar á daglegt líf, þá á þessi umræða erindi við þig.

Framtíðin mótast ekki af tækninni einni saman, heldur líka af ákvörðununum sem við tökum um hvernig við nýtum hana.

Nánari upplýsingar: https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/gervigreind-hver-motar-framtidina

Öll hjartanlega velkomin!