Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpunarþing 2026
Gróska hugmyndahús

Nýsköpunarþing 2026

29. október kl. 14:00

Nýsköpunarþing 2026 verður haldið fimmtudaginn 29. október næstkomandi í fyrirlestrarsalnum í Grósku.

Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Í ár verður nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli.

Við hvetjum áhugasöm til þess að taka tímann frá og skrá sig.

Smelltu hér til að skrá þig: https://forms.office.com/e/xGmi2Y4EZB

Dagskrá birtist þegar nær dregur á vefsíðu Rannís: https://island.is/s/rannis/vidburdir/nyskopunarthing-2026-29-10-2026

Einnig verður hægt að horfa á viðburðinn í beinu streymi.

Þingið er haldið árlega í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Hugverkastofunnar og Nýsköpunarsjóðsins Kríu.

Gróska hugmyndahús
Hýst af:
Rannís
Rannís
Nýsköpunarsjóðurinn Kría
Nýsköpunarsjóðurinn Kría
Hugverkastofan
Hugverkastofan