Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Ertu að leita að fjárfestum?
TBD

Ertu að leita að fjárfestum?

8. október
Hýst af IceBAN
TBD

IceBAN hefur opnað fyrir umsóknir frá sprotafyrirtækjum sem vilja koma fjárfestingartækifæri sínu á framfæri við englafjárfesta.

Sækja þarf um fyrir 25. september til að koma til greina á næsta pitch-viðburði IceBAN, 13. október

Hvernig virkar IceBAN?

IceBAN er tengslanet englafjárfesta. Það eru einstaklingar sem fjárfesta eigin fjármagni í sprotafyrirtækjum og geta auk þess lagt þeim lið með reynslu, þekkingu og tengslum.

Öll fjárfestingartækifæri sem skráð eru í vefgátt IceBAN verða sýnileg félagsmönnum samtakanna. Síðan er kosið um hvaða fyrirtæki fá að kynna á næsta pitch-viðburði. Ef áhugi kviknar halda frumkvöðlar og fjárfestar samtalinu áfram og meta mögulega fjárfestingu.

Gæti þetta átt við um fyrirtækið ykkar?

Fyrirtækið þarf ekki að vera fullmótað eða komið með tekjur. Það þarf þó að geta sýnt fram á skýrt viðskiptatækifæri og trúverðuga leið áfram. Til dæmis:

- lausn á skýru vandamáli

- frumgerð, fyrstu notendur eða önnur staðfesting á eftirspurn

- öflugt teymi og möguleika til vaxtar

- skýra áætlun um hvernig fjármagnið verður nýtt

- vilja til að fá nýja hluthafa að borðinu

Sæktu um á www.iceban.is