Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Valmynd
Prótó
Á netinu

Prótó

1. október kl. 17:00
Hýst af Prótó
Á netinu

Hefur þig einhverntímann langað til að semja lag, taka upp stuttmynd, skrifa skáldsögu eða búa til app?

Af hverju ekki bara að hefjast handa og skrá þig í Prótó þar sem fullt af öðru fólki er líka að skapa, prófa hugmyndir og láta drauma sína verða að veruleika.

Prótó er frítt 4. vikna ferli á netinu núna í október sem snýst fyrst og fremst um að mynda samfélag af fólki sem er að skapa eitthvað. Þú þarft ekki að vera með hugmynd áður en þú skráir þig því fyrsta vikan fer alfarið í að velja og móta hugmynd.

Í Prótó ferlinu deilum við með hvert öðru hvað við erum að vinna í, veitum endurgjöf og hvetjum hvort annað áfram.

Skráning og nánari upplýsingar má finna á https://proto.is