Gróska hugmyndahús
KLAK health kynningarviðburður
11. september kl. 12:00
Hýst af KLAK - Icelandic Startups
KLAK health er viðskiptahraðall fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki í heilsutækni.
Viðburðurinn fer fram 11. september milli 12:00 - 13:00 í Mýrinni í Grósku.
KLAK health er fimm vikna viðskiptahraðall sem sniðinn er að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni, allt frá stafrænum tæknilausnum yfir í lækningatækni, líftækni og lyfjaþróun.
Hraðallinn veitir þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og tengslum við fjárfesta og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.
Allt að tíu fyrirtæki verða valin til þátttöku og fá aðgang að skrifstofuaðstöðu í Grósku á meðan á hraðlinum stendur. Þátttaka í hraðlinum er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
