Drift EA
Ránnís með opna viðtalstíma - Tækniþróunarsjóður
8. september kl. 08:30
Hýst af Tækniþróunarsjóður og Rannís
Viðtölin eru ætluð þeim sem eru að vinna að umsóknum í Tækniþróunarsjóð og endurgreiðslu R&Þ kostnaðar.
Tækniþróunarsjóður býður upp á fjóra flokka fyrirtækjastyrkja:
- Fræ/Þróunarfræ
- Sprota
- Vöxt
- Markaðsstyrkur. Hver styrkur er sniðinn að mismunandi þróunarstigi verkefna og fyrirtækja.
Einnig eru í boði einkaleyfastyrkir og styrkir til hagnýtra rannsóknarverkefna innan háskóla og rannsóknastofnana (gjarnan í samstarfi við fyrirtæki).
BÓKANIR Í VIÐTALSTÍMA: sigurdur.o.sigurdsson@rannis.is
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Hann heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.


