Styrkjadagur Driftar
💰Styrkjadagur Driftar💰
Á Styrkjadegi Driftar færðu hagnýtar upplýsingar, ráð frá reynslumiklum sérfræðingum og tækifæri til að spyrja beint þá sem þekkja styrkjaumhverfið best.
Á dagskrá:
Erindi og kynningar (1 klst)
Kynning á Styrkjasveit Driftar, farið verður yfir styrkjaumhverfið og styrkjadagatalið, erindi frá SSNE, erindi frá RANNÍS, María Dís Ólafsdóttir frumkvöðull deilir sínum bestu ráðum úr raunverulegum styrkjaumsóknum.
Opin viðtöl og spurningar úr sal (2 klst)
RANNÍS, SSNE, Svava Björk Ólafsdóttir nýsköpunarstjóri hjá Háskólinn á Akureyri og María Dís Ólafsdóttir frumkvöðull og sérfræðingur í umsóknarskrifum verða þátttakendum innan handar og veita hagnýt ráð og persónulega aðstoð við styrkumsóknina þína.
Fyrir hverja? Hvort sem þú ert frumkvöðull, rekur ungt fyrirtæki eða ert að þróa nýja hugmynd í þínu fyrirtæki, þá er þetta kjörið tækifæri til að fá skýrari mynd af þeim styrkjum sem eru í boði og hvernig þú eykur líkurnar á árangri.
Eftir hefðbundna dagskrá verður tengslamyndun og happy hour í Messanum
Námskeiðið er eingöngu fyrir aðildafélaga
Sendu póst á driftea@driftea.is til að skrá þig í aðild og tryggja þér pláss á námskeiðinu ásamt fræðslu- og skemmtiviðburðum sem framundan eru.
Þar má nefna: Sölunámskeið - Hagnýt vinnustofa í B2B sölu og samningatækni, markaðsnámskeið - stafræn markaðssetning og vörumerkjabygging, Pitch námskeið, bókhaldstækni, skilvirkni í rekstri og margt fleira!

