Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Meistarabúðir Hugmyndasmiða 2026
Elliðaárstöð

Meistarabúðir Hugmyndasmiða 2026

22. júní kl. 09:00 - 26. júní kl. 12:00

Meistarabúðir er skapandi sumarnámskeið fyrir krakka á aldrinum 10-11 ára sem vilja læra að fá hugmyndir sem geta breytt heiminum.

Námskeiðið fer fram bæði úti og inni í Elliðaárstöð og munu þátttakendur smíða og búa til, fara í leiki og lenda í ævintýrum.

Þema Meistarabúða 2026 eru kassabílar!

Á námskeiðinu læra þátttakendur:

– að fá hugmyndir og hugsa skapandi

– hvernig hægt er að sækja innblástur úr umhverfinu og nýta í hugmyndavinnu

– að búa til hugmyndir með og fyrir náttúruna

– ýmsan fróðleik um endurnýtingu, orku og vísindi

Hverjir: 10-11 ára krakkar

Hvenær: 22.-26. júní kl 9:00-12:00

Hvar: Elliðaárstöð

Skráning á abler.io: https://tinyurl.com/5aunsebw

Samstarfsaðilar Meistarabúða 2026 eru Elliðaárstöð og VOR Vísindasjóður.