Fjártækni á Íslandi
Reykjavík Fintech, Íslandsstofa og SFF efna til viðburðar um fjártækni á Íslandi 2026
Miðvikudaginn 27. maí kl. 16 efna Reykjavík Fintech, Íslandsstofa og SFF til viðburðar um fjártækni á Íslandi 2026, í tilefni af nýrri skýrslu Northstack um kortlagningu fjártækniumhverfisins á Íslandi, Fintech Iceland 2026: An ecosystem review and map. Viðburðurinn verður haldinn á Fantasíu, viðburðarsal Vinnustofu Kjarvals.
Eszter Czibor hjá Northstack mun ræða um helstu niðurstöður skýrslunnar, auk þess sem Ólöf Jónsdóttir hjá Íslandsbanka, Garðar Karl Ólafsson hjá Myntkaupum og Bergur Ebbi Benediktsson hjá Spesíu flytja erindi um tækifærin framundan.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Hægt er að skrá sig hér: https://share-eu1.hsforms.com/1uO7qnNSET4iDPoaPcz1wiw2eythf
.png?alt=media&token=447af917-4d41-497d-a289-c4085eedf45f)

