Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
IceBAN X Vinnustofa Kjarval: Englafjárfestingar
Austurstræti 12

IceBAN X Vinnustofa Kjarval: Englafjárfestingar

26. maí kl. 17:00
Hýst af IceBAN

Gætir þú verið næsti engill í íslensku nýsköpunarsamfélagi?

IceBAN – íslenskir englafjárfestar bjóða til viðburðar á Vinnustofu Kjarval 26. maí kl. 17–19 fyrir reynslumikið fólk sem hefur áhuga á að kynnast englafjárfestingum og því hvernig reynsla, tengsl og fjármagn geta skipt sköpum fyrir ný fyrirtæki á fyrstu stigum.

Við heyrum frá englum innan IceBAN sem deila reynslu sinni af því að taka sín fyrstu skref í englafjárfestingum, hvað vakti áhuga þeirra, hvað þau hafa lært á leiðinni og hvernig þau nálgast fjárfestingatækifæri í nýsköpun.

Englafjárfestarnir eru Jón Ingi Bergsteinsson, Marinella Haraldsdóttir og Kristófer Júlíus Leifsson.

Ef þú hefur byggt upp dýrmæta reynslu og vilt skoða nýja leið til að taka þátt, hafa áhrif og opna á spennandi fjárfestingatækifæri, þá gæti þetta verið viðburður fyrir þig.

Skráning er nauðsynleg fyrir gesti sem eru ekki meðlimir Vinnustofu Kjarval. Sjá hér: https://forms.gle/aW1AgeSax7jNHw9E9