Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Framtíðin í fjarskiptum
Sykursalur

Framtíðin í fjarskiptum

7. maí kl. 08:30

KLAK, Stjórnvísi, Huawei, og Nova bjóða til viðburðar í Grósku þar sem hin stafræna framtíð verður tekin til skoðunar með áherslu nýsköpun í fjarskiptum og hvaða hlutverk fjarskiptin munu koma til með að þjóna í stöðugri þróun gervigreindarinnar og snjallvæðingu umhverfisins í kringum okkur. Smelltu hér til að bóka þig. https://www.stjornvisi.is/is/vidburdir/framtidin-i-fjarskiptum

Hvenær?

7. maí 08:30 – 10:00

Hvar?

Sykursalurinn - Gróska

Dagskrá

08:30 - Húsið opnar

08:40 - Beatriz frá Huawei

Framtíðarsýn fjarskipta og gervigreindar

Farið verður yfir TechVision framtíðarsýn Huawei, þróun gervigreindar og hvernig fjarskiptainnviðir styðja við næstu kynslóð tæknilausna.

09:00 - Rafal / Nova

IoT og innviðir – staðan í dag og hvert við stefnum

Raunveruleg staða hlutanetsins (IoT) á Íslandi, hvernig IoT er að móta innviði eins og samgöngur, veitur og borgarumhverfi – og hvað er framundan.

09:15 – KLAK / Startup SuperNova

Nýsköpun í framkvæmd

Kynning á Startup SuperNova hraðlinum og hvernig hann styður við þróun og innleiðingu nýrra lausna á sviði stafrænnar nýsköpunar.

09:30 – Atlas

Stafrænt fullveldi Íslands

Hvers vegna stafrænt fullveldi skiptir sífellt meira máli og hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í átt að öruggari og sjálfbærari stafrænum rekstri.

09:45 – Spurningar og umræður

Sykursalur
Gróska
Hýst af:
Startup SuperNova
Startup SuperNova
Stjórnvísi
Stjórnvísi
KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups
Nova
Nova