Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Prosecco & Pitch
Gróska hugmyndahús

Prosecco & Pitch

6. maí kl. 17:00

Þann 6. maí býður KLAK - Icelandic Startups upp á Prosecco & Pitch í Grósku!🎉🥂

Viðburðurinn er lifandi og skemmtilegur þar sem sprotafyrirtækin sem taka þátt í viðskiptahraðlinum Hringiðu kynna verkefni sín fyrir gestum.

Sprotarnir eiga það allir sameiginlegt að leggja sitt af mörkum til að takast á við áskoranir sem tengjast hringrásarhagkerfinu og umhverfismálum. Við hvetjum því öll áhugasöm um nýsköpun, sjálfbærni og framtíðina til að mæta, mingla og styðja við sprotana. Boðið verður upp á búbblur og léttar veitingar🌟🌟

Við hlökkum til að sjá ykkur við Gróðurvegginn á 1. hæð í Grósku!🌎

Fyrirtækin sem taka þátt í Hringiðu 2026 eru sjö:

🌿Araxni

Araxni vinnur að því að framleiða köngulóarsilki með hjálp líftækni sem kemur í stað plasts í sjávarútvegi, textíliðnaði og fleiri geirum, með það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum.

🌿E-LÍSA

E-LÍSA er hugbúnaðarlausn sem dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og hámarkar orkuvinnslu með því að bæta afköst borhola á markvissan hátt.

🌿IORDEN

IORDEN er sjálfvirk gæðastýringarlausn fyrir smærri matvælaframleiðendur sem eykur gagnsæi, einfaldar ferla og dregur úr villum með samþættingu vél- og hugbúnaðar.

🌿Loopable

Loopable umbreytir ónýtum textíl í hágæða prjónagarn og fyllingarefni, og vinnur þannig gegn textílsóun með því að skapa ný verðmæti úr úrgangi.

🌿Ratatag

Ratatag tengir eigendur og finnendur týndra muna með QR-kóðakerfi sem lengir líftíma þeirra, sem stuðlar að betri nýtingu á eigum fólks og minnkar neyslu.

🌿Soil Lagoon

Soil Lagoon vinnur að uppbyggingu fyrstu jarðvegshreinsistöðvar Íslands sem nýtir jarðhitavatn til að hreinsa mengaðan jarðveg innanlands.

🌿Thermal Beets Records

Thermal Beets Records framleiðir sjálfbærar vínylplötur úr sykurrófum í stað PVC, með það að markmiði að gera tónlistarútgáfu umhverfisvænni.

✨✨Bakhjarlar Hringiðu eru Terra, Faxaflóahafnir, Reykjavíkurborg, Samtök Iðnaðarins og Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið✨✨