Nýsköpunardagur hins opinbera 2026
Nýsköpunardagur hins opinbera 2026
Þema NHO26 viðburðarins verður heildstæðar umbætur í ríkisrekstri — með áherslu á hvernig ríkið getur nýtt innkaup og umbætur í starfsemi til að ná fram aukinni hagkvæmni og skilvirkni í þjónustu við almenning og fyrirtæki.
Ríkisstofnanir standa frammi fyrir vaxandi kröfum um aðhald í útgjöldum, á sama tíma og þörf fyrir öfluga og trausta opinbera þjónustu hefur aldrei verið meiri.
Árleg vöru- og þjónustukaup ríkisins árið 2024 námu um 530 milljörðum króna, sem jafngildir um 11–12% af vergri landsframleiðslu á Íslandi. Því er til mikils að vinna ef stofnanir leggjast á eitt við að knýja fram bestu fáanlegu samningskjör og ná auknum samlegðaráhrifum í rekstri með nýskapandi hætti.
NHO26 mun ávarpa þessa stöðu, skoða færar leiðir sem stofnanir geta fetað til að mæta áskorunum og ræða hvaða breytingar á viðhorfum og aðferðum þurfi til að til að grípa tækifærin.
Takmarkaður sætafjöldi í boði.
Nánar inn á https://island.is/s/fjarsyslan/nyskopunardagur-hins-opinbera-2026

