Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Matarslóðir Snæfellsness
Miðhraun 2

Matarslóðir Snæfellsness

1. maí kl. 11:00 - 2. maí kl. 18:00

Áhugafólki um matarmenningu og gómsæt matvæli býðst tækifæri til að skoða í matarkistu Snæfellsness og kynnast fólkinu á bak við hráefnið – þeim sem rækta, framleiða og skapa með ástríðu og virðingu fyrir náttúru og staðbundinni menningu.

Hér er hlekkur á skráningu í ferðina: https://forms.gle/4rBmjYBWxWgJi38m8

Á Snæfellsnesi mætast hefðir og nýsköpun á einstakan hátt svo úr hefur þróast fjölbreytt framleiðsla á hágæða matvælum, sem við fáum að smakka, skoða og skilja. Í stuttu máli að njóta þess besta sem Snæfellsnes hefur upp á að bjóða.

Innifalið er ævintýrakvöldverður í Hlöðunni á Miðhrauni á föstudagskvöldið, léttur hádegisverður á laugardag, auk fjölmargra heimsókna til smáframleiðenda um allt Snæfellsnes með kynningu á þeirra vörum, smakki og fróðleik bæði föstudag og laugardag.

Mæting á Miðhrauni á Snæfellsnesi föstudaginn 1. maí kl 11.00. Þátttakendur sameinast í bíla til að ferðast á milli staða.

Ferðin kostar 39.500 á mann.

Greiðist inn á reikning Crisscross:

kt: 690416-2470

banki: 0301 - 26 008512

Skýring: Matarslóðir

crisscross@crisscross.is

Vinsamlegast greiðið ferðina eigi síðar en 24. apríl.

Þátttakendur í ferðinni greiða sérstaklega fyrir gistingu.

Ef bókað er hjá okkur getum við boðið afslátt á gistingu á Miðhrauni - Lava Resort sem er fjölskyldurekinn gististaður á sunnanverðu Snæfellsnesi, rétt áður en komið er að afleggjaranum yfir Snæfellsnes um Vatnaleið (þjóðveg 56).

Auk gistingar er á Miðhrauni lítið fjárbú, náttúrubað, sauna og veitingastaður í gömlu Hlöðunni.

Innifalið í gistingu er aðgangur að náttúrubaðinu og vel úti látið morgunverðarhlaðborð í Hlöðunni.

Hér er hlekkur á skráningu í ferðina: https://forms.gle/4rBmjYBWxWgJi38m8

Hægt er að velja úr mismunandi gistimöguleikum:

Herbergi í Ömmuhúsi - með sameiginlegri salernisaðstöðu. í húsinu eru 5 herbergi og 3 salerni.

Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 2 með morgunmat: 25.000 kr

Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 1 með morgunmat: 22.000 kr

Gisting í 4ja manna húsi (tvö 2ja manna svefnherbergi, eldhúsaðstaða og salerni)

Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 2 með morgunmat: 27.750 kr

Tilboðsverð fyrir herbergi fyrir 1 með morgunmat: 24.750 kr

Gisting í 2ja manna húsi (eitt 2ja manna svefnherbergi, eldhúsaðstaða og salerni).

Tilboðsverð fyrir 2 í herbergi með morgunmat: 41.000 kr

Tilboðsverð fyrir 1 í herbergi með morgunmat: 38.000 kr

Athugið að hægt er að velja gistingu í 4ja manna húsi þó einungis séu 2 saman en þá munu við úthluta hinu herberginu til annarra í hópnum. Ef þið hafið óskir með hverjum þið viljið vera í húsi er hægt að skrifa það inn í pöntunarforminu.

Til glöggvunar má sjá mismunandi gistimöguleika á Miðhrauni hér: https://lavaresort.digitalfamtrip.com/lr-interactive-video

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Slow Food á Íslandi, Crisscross matarferða og Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi.