Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Lokaviðburður norðansprotans
Drift EA

Lokaviðburður norðansprotans

22. apríl kl. 17:00

Lokaviðburður Norðansprotans verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl kl. 17:00 í Messanum í Drift EA á Akureyri 🚀

🏆✨ Hver fer heim með 1 milljón króna í verðlaun og titilinn Norðansprotinn 2026? ✨🏆

Ekki missa af spennandi lokaviðburði þegar 5-8 frumkvöðlar kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefnd og gestum💡

Í dómnefnd sitja Sesselja Barðdal Reynisdóttir frá Drift EA, Hreinn Þór Hauksson fyrir hönd Landvætta fjárfestingasjóðs, Sveinbjörg Rut Pétursdóttir framkvæmdastjóri SSNV og Stefán Pétur Sólveigarsson frá Hraðinu nýsköpunarmiðstöð.

🥂 Léttar veitingar í boði

🙌 Öll velkomin!

Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA og Hraðsins, með veglegum stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði 💙

Drift EA
Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Drift EA
Drift EA
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)