Norðurland
Leitin að Norðansprotanum
15. apríl kl. 12:00 - 22. apríl kl. 15:00
Norðurland
Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Keppnin fer fram dagana 15.-22. apríl og lýkur með úrslitum sem haldin verða í Messanum í Drift EA. Landvættir slhf., fjárfestingasjóður í rekstri Axum verðbréfa hf. veitir verðlaunafé upp á 1.000.000 kr.
Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu.
Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Landvættum fjárfestingasjóði.
Skráning fer fram hér; https://www.ssne.is/is/moya/formbuilder/index/index/nordansprotinn-2026
Norðurland
Hýst af:

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)

Hraðið

Drift EA

Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
