Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík
Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

20. mars kl. 13:00 - 21. mars kl. 17:00
Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

Þér er boðið að taka þátt í hugmyndahraðhlaupi!

Í Krubbi færðu þjálfun í nýsköpunarhugsun í leit að vörum og svörum við áskorunum.

Hér skráir þú þig leiks og færð nánari upplýsingar:

👉https://www.hic.is/krubbur

Hvernig fer þetta fram?

🌱 Á tveimur dögum færðu þjálfun í aðferðum nýsköpunar til að gera hugmynd að veruleika

🌬 Þú færð innblástur og leiðsögn til að vinna í teymi að nýjum lausnum

👥 Þú færð aðstoð frá þjálfurum og tækifæri til að kynna hugmyndina þín fyrir dómnefnd

🏆 Það verða verðlaun

Hvaða áskoranir?

🔑 Lögð verður áhersla á hugmyndir að því hvernig við gerum bæ betri fyrir börn. Jafnframt verður opinn flokkur.

💨 Er vindurinn mættur í seglin? Skráðu þig til leiks.

Takmarkanir?

🟢 Ef þú ert á aldrinum 16-99 ætti ekkert að stoppa þig

🟢 Það kostar ekkert að taka þátt

🟢 Hugmyndahraðhlaupið er fyrir öll áhugasöm um nýsköpunarfærni.

🟢 Býrðu ekki á Húsavík? Það skiptir engu, þér er velkomið að taka þátt - það er gott að gista og snæða á Húsavík.

🟢 Mikilvægt: Það er hvorki nauðsynlegt né skylda að búa yfir ákveðinni þekkingu.

🟠 Ertu enn að hugsa um að þetta sé kannski ekki fyrir þig? Hringdu þá í Stefán Pétur verkefnastjóra Hraðsins 861-0057 og fáðu frekari upplýsingar

Hver heldur Krubb 2026 og afhverju?

Hraðið heldur Krubb í samstarfi við SSNE og HA til að efla búsetugæði, nýsköpunarsenuna og frjóvga farveg fjölbreyttra atvinnugreina á Norðurlandi.

Sjáumst á Stéttinni!

🏁Áskorun eitt: Hvernig gerum við bæi betri fyrir börn.

Hvernig getum við gert bæi betri fyrir börn – skapað öruggar götur, græn svæði og fjölbreytt rými til leiks og samveru? Þegar börn fá að taka þátt í að móta sitt eigið umhverfi verða lausnirnar bæði betri og mannúðlegri. Hugmyndahraðhlaupið Krubbur sýnir hvernig skapandi samvinna getur hrundið af stað einföldum en áhrifaríkum breytingum.

🏁Opin áskorun

Áskorun þar sem öll mega lofa hugmyndafluginu að ráða og leggja fram hugmyndir – stórar sem smáar. Hér eru engar rangar hugmyndir, aðeins tækifæri til að sjá hlutina í nýju ljósi og prófa nýjar leiðir. Með skapandi hugsun og leik að leiðarljósi verða til lausnir sem annars hefðu aldrei komið upp

Af hverju heitir þetta eiginlega Krubbur?

Hugmyndahraðhlaupið dregur nafn sitt af Krubbi og svokölluðu Krubbsveðri sem skapast í ákveðinni vindátt á Húsavík. Veðrinu fylgir svo mikill stormur að fólk heldur sig innan dyra meðan hann geysar. Vonast er eftir alvöru Krubbsstormi í hugum þátttakenda meðan á hlaupinu stendur!

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík
Hýst af:
Hraðið
Hraðið
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri