Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Kynningarfundur á styrkja- og stuðningsumhverfinu
Samtök iðnaðarins

Kynningarfundur á styrkja- og stuðningsumhverfinu

28. janúar kl. 09:00

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 28. janúar kl. 9:00-10:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, á 1. hæð.

Sérfræðingar frá Rannís munu kynna opinberan stuðning til nýsköpunarverkefna í Tækniþróunarsjóði auk tækifæra á erlendum mörkuðum.

Dagskrá

• Styrkir Tækniþróunarsjóðs

• Skattahvatar rannsókna- og þróunarverkefna

• Styrkir Eurostars og þjónusta EEN

• Reynslusaga styrkþega

Boðið verður upp á morgunkaffi og að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun.

Við hlökkum til að sjá ykkur, skráning er hér: https://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/a-dofinni/skraning/nanar/2170

Fundurinn verður einnig í streymi.

Samtök iðnaðarins
Hýst af:
Tækniþróunarsjóður
Tækniþróunarsjóður
Rannís
Rannís
Samtök iðnaðarins
Samtök iðnaðarins