Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun og ný tengsl - Selfoss
Tryggvagata 13

Nýsköpun og ný tengsl - Selfoss

19. janúar kl. 11:00

KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar HÍ halda opinn kynningarfund á Selfossi í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitafélaga, Háskólafélag Suðurlands og Orkídeu.

DAGSKRÁ:

Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi

– KLAK kynnir sín verkefni en félagið heldur úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.

– Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.

– Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.

– Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.

Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.

Fyrir hverja?

Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:

- eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd

- eru að stíga sín fyrstu skref

- eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði

Skráning: https://luma.com/k9v9t3ao

Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & Ný Tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Tryggvagata 13
Fjölheimar
Hýst af:
KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups
Samband sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS)
Samband sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS)
Orkídea - orka og nýsköpun
Orkídea - orka og nýsköpun
Íslandsstofa
Íslandsstofa
Háskólafélag Suðurlands
Háskólafélag Suðurlands
Tækniþróunarsjóður
Tækniþróunarsjóður