Gróska hugmyndahús
Vísindaferð Gulleggsins 2026!
16. janúar kl. 17:00 - kl. 20:00
Hýst af Gulleggið og KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups og Nýsköpunar- og frumkvöðlanefnd HÍ kynna vísindaferð Gulleggsins!
Gulleggið, stærsta frumkvöðlakeppni landsins, verður kynnt ásamt því að spennandi fyrirtæki úr hópi bakhjarla Gulleggsins verða á svæðinu og bjóða upp á spjall.
Vísindaferðin er opin öllum háskólanemum og verða drykkir í boði frá CCEP á meðan birgðir endast.
Engin önnur en Alaska1867 mun koma fram og halda uppi stemningunni í vísindaferðinni.
Gulleggið er frumkvöðlakeppni á hugmyndastigi og fer fram í febrúar. Hefur þú áhuga á nýsköpun, kraumar í þér viðskiptahugmynd, eða langar þig að kynnast frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi?
Skráðu þig í Gulleggið hér: https://apply.younoodle.com/round/gulleggid_2026
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

