Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar - Master Class Námskeið
Hannesarholt

Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar - Master Class Námskeið

2. desember kl. 10:00 - kl. 16:00 2025

Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH) og Enterprise Europe Network á Íslandi standa fyrir "master class" námskeiði í samstarfi við Gate2Growth.

Námsskeiðsgjald einungis: 4.990 kr.

Fyrri dagurinn stendur frá kl. 10-16, en boðið er upp á einstaklingsráðgjöf seinni daginn. Athugið, það er takmarkað pláss í einstaklingsráðgjöfina og verður fundartímum úthlutað í þeirri röð sem fyrirspurnir berast.

Markmið námskeiðsins er að leiðbeina þátttakendum við að þróa öflugt viðskiptamódel, setja fram faglega viðskiptaáætlun og læra að velja réttar fjármögnunaraðferðir. Farið verður yfir hringrásar- og línuleg viðskiptamódel, áskoranir opinberra innkaupa og hvernig fyrirtæki geti sameinað einkafjárfestingu og opinbera styrki.

Sérstök áhersla er lögð á:

- Hvernig á að laða að fjárfesta

- Fjárhagsáætlanir og lausafjárgreiningu

- Helstu ESB-styrki

- Hvers vegna og hvenær á að taka þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum

Námsskeiðsgjald einungis: 4.990 kr.

Leiðbeinandi er Uffe Bundgaard-Joergensen, hagfræðingur og forstjóri Gate2Growth. Hann er sérfræðingur í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja í Evrópu og er með víðtæka reynslu af stjórnun, rannsóknum, orkumálum, alþjóðlegri ráðgjöf og fjárfestingum.

Innifalið: Hádegismatur, hressing og öll gögn, þar með talið: EU-verkefnaskýrslan Circular & Linear Business Cases and Public Procurement Challenges. Aðgangur að G2G Business Plan Writer og fjárhagsáætlunarmódúl í 3 mánuði.

Nánar á vef Rannís:

https://island.is/s/rannis/vidburdir/fra-vidskiptahugmynd-til-fjarmognunar-master-class-namskeid-2-12-2025