Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Office Hours með KPMG
Gróska hugmyndahús

Office Hours með KPMG

27. nóvember kl. 09:00 2025

Örfá sæti laus í Office Hours með KPMG ⏳

Office hours er viðbótarþjónusta KLAK VMS mentoraþjónustunnar þar sem fyrrum þátttakendur viðskiptahraðla KLAK og Dafna geta bókað 30 mínútna fundi með reyndum sérfræðingum úr hópi mentora eða frá samstarfsaðilum KLAK VMS, sér að kostnaðarlausu. Á fundunum gefst þátttakendum kostur á að fá hagnýt ráð og leiðsögn sem tengist uppbyggingu og rekstri sprotafyrirtækis þeirra. Dæmi um efni eru lagaleg málefni, hugverkaréttur og mannauðsmál.

Þann 27. nóvember n.k. munu sérfræðingar frá KPMG bjóða upp á Office Hours fundi í Grósku.

Aron Ás Kjartansson og Urður Hafþórsdóttir, lögfræðingar hjá KPMG Law, veita ráðgjöf til nýsköpunarfélaga og svara spurningum um helstu lögfræðileg og skattaleg álitaefni sem upp kunna að koma.