Tækifæri í netöryggi – netöryggisstyrkir Eyvarar og Digital Europe
Rannís, Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH-IS) og Eyvör – hæfnisetur í netöryggi (NCC-IS) standa fyrir opnum morgunfundi mánudaginn 17. nóvember nk.
Fundurinn er opinn öllum áhugasömum, bæði fyrirtækjum og stofnunum sem vilja kynna sér fjármögnun og tækifæri á sviði netöryggis og stafrænnar nýsköpunar.
Skráning:
Staðsetning: Arion Banki, Þingvellir (salur)
Boðið verður upp á létta morgunhressingu frá kl. 8:30 og hefst dagskráin formlega kl. 9:00 og lýkur fundi 10:15.
Dagskrá:
- Opnun: Almennt um Eyvöru, – Hrannar Ásgrímsson, verkefnisstjóri Eyvarar
- Erindi frá Hákoni, öryggisstjóra Arion Banka og meðlim í fagráði Eyvarar
- Reynslusaga frá Lagavita – Jóhannes Eiríksson
- Kynning á netöryggisstyrk – Eyjólfur Eyfells hjá Rannís
- Evrópustyrkir Defend Iceland – Hörn Valdimarsdóttir
- Evrópustyrkir – Sigþrúður Guðnadóttir hjá Rannís
- Umræður, spurningar og svör

