Þverholt 11
Evrópskir styrkjamöguleikar fyrir skapandi greinar
13. nóvember kl. 10:00 - kl. 12:00 2025
Hýst af Rannís
Rannís, Listaháskóli Íslands og Rannsóknasetur skapandi greina bjóða til upplýsingafundar um samstarfs- og styrkjamöguleika í Evrópu fyrir skapandi greinar.
Aðalgestur fundarins verður Kati Uusi-Rauva, forstöðukona Regional Hub North hjá EIT Culture & Creativity, sem kemur sérstaklega til Íslands til að kynna starfsemi EIT og þau fjölbreyttu tækifæri sem standa aðilum í skapandi greinum til boða í gegnum þetta nýja evrópska samstarfsnet.
Á fundinum verður einnig farið yfir tækifæri í Creative Europe og Horizon Europe.
Fundurinn verður haldinn í Listaháskóla Íslands, Stakkahlíð 1, í fyrirlestrarsalnum Skriðu, fimmtudaginn 13. nóvember kl. 10:00–12:00.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá sig:

