Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Startup Landið lokaviðburður á Akureyri
Menningarhúsið Hof

Startup Landið lokaviðburður á Akureyri

30. október kl. 13:00 2025

Það styttist í lokaviðburð Startup Landið, sem haldinn verður á Akureyri fimmtudaginn 30. október kl. 13–15.

Okkur er sönn ánægja að bjóða þér að fagna þessum spennandi áfanga með okkur!

Tólf teymi voru valin til þátttöku í Startup Landið og hafa þau unnið ötullega að nýsköpunarverkefnum sínum undanfarnar vikur.

Á lokaviðburðinum stíga teymin á svið og kynna fyrirtækin sín með stuttri og hnitmiðaðri kynningu (pitch).

________________________________________

🌟 Þátttakendur í Startup Landinu 2025

Mundialis – Malað frostþurrkað grænmeti, beint í hollustudrykkinn. (Vesturland)

Festivus – Hornfirskt gæðasúkkulaði og ævintýralegur áfangastaður. (Suðurland)

Snældur – Íslensk hönnunar- og gjafavara fyrir börn á aldrinum 0–4 ára úr íslenskum við. (Norðurland eystra)

Ahsig ehf. – Dagsferðir fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði. (Norðurland vestra)

Fast and Affordable – Ný byggingartækni til að lækka byggingarkostnað og stytta byggingartíma á steinsteyptum húsum. (Suðurnes)

Cannarctica – Orkusparandi heildarlausn fyrir gróðurhús í köldu loftslagi. (Vestfirðir)

Lífrænt vottaðar íslenskar lækningajurtir – Framleiðsla og sala lífrænna lækningajurta. (Vesturland)

Hunda Veisla – Lífrænt heilfóður fyrir hraustari hunda, unnið úr úrgangi sláturhúsa. (Suðurland)

Böggvisbrauð – Lífrænt súrdeigsbrauð – næringarríkt og umhverfisvænt. (Norðurland eystra)

Brekka Ferðaþjónusta – Ómönnuð verslun á Þingeyri ásamt veitingasölu. (Vestfirðir)

Sólbrekka Mjóafirði – Ævintýraleg vetrarferð með áherslu á friðsæld og náttúrufegurð. (Austurland)

Litli Gúri ehf. – Upplifðu náttúruna og undur hafsins – RIB Safari á Skagaströnd. (Norðurland vestra)

________________________________________

📍 Viðburðurinn fer fram í Hofi á Akureyri

Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti.

Við lofum góðri stemningu, innblæstri og skemmtilegum kynningum – og hlökkum til að sjá þig á lokaviðburði Startup Landsins á Akureyri! 😊

👉 Vinsamlegast skráðu þig hér: Skráning á viðburðinn https://luma.com/od32ee6r

________________________________________

Með kærri kveðju,

teymi Startup Landsins