Gróska hugmyndahús
Nýsköpunarþing 2025
30. október kl. 14:00 2025
Nýsköpunarþing 2025 verður haldið í Grósku fimmtudaginn 30. október kl. 14.00-15.30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 verða afhent á þinginu.
Þema þingsins í ár er Ísland í stóru myndinni þar sem fjallað verður um styrkleika Íslands í nýsköpun á alþjóðavettvangi og skoðuð áhrif óvæntra vendinga í heimsmálum á sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja erlendis. Nánari dagskrá verður birt fljótlega.
Að Nýsköpunarþingi standa Íslandsstofa, Rannís, Hugverkastofan og Nýsköpunarsjóðurinn Kría.
Skráningarform: https://share-eu1.hsforms.com/1s_nY36B8QKqBzKT_kUBueg2eythf




