Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra boða sameiginlega til nýsköpunarráðstefnu um heilbrigðistæknilausnir og þjónustu á grundvelli þeirra þann 1. október. Markmiðið er að leiða saman haghafa til samtals um tækifærin sem felast í nýsköpun og nýjum lausnum í opinberri heilbrigðisþjónustu til að efla heilbrigðisþjónustu við landsmenn. Fjallað verður um stöðuna eins og hún er í dag, um hönnun lausna til að mæta raunverulegum áskorunum, um innleiðingu þeirra, sjónarhorn sjúklinga o.fl. Einnig verður reynt að varpa ljósi á hvernig skýra megi lagaumgjörð og verkferla við innleiðingu stafrænnar tækni og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.
Staður: Ráðstefnan verður haldin í Grósku, Bjargargötu 1 í Reykjavík.
Stund: Miðvikudagurinn 1. október. Kl. 8.30 - 16.00. Boðið upp á morgunhressingu í upphafi ráðstefnunnar.
Skráning: Vinsamlega skráið þátttöku á skráningarsíðu ráðstefnunnar: https://forms.office.com/e/N8PapNaanp
Dagskrá: Dagskrá nýsköpunarráðstefnunnar sem PDF-skjal: https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/NM-028467_Ny%cc%81sko%cc%88punarra%cc%81%c3%b0stefna_Dagskra%cc%81_A4_3mm20.pdf

