Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpunarkaffi
Háskólinn á Akureyri

Nýsköpunarkaffi

30. september kl. 10:00 2025

💡 Ræðum saman um nýsköpun og frumkvöðlastarf í Háskólanum á Akureyri!

⚡️ HA og Drift EA standa fyrir mánaðarlegu kaffispjalli um nýsköpun og frumkvöðlastarf. Öll velkomin!

📍 Nýsköpunarkaffið fer fram í Háskólanum á Akureyri, í stofu N201

✨ Fyrir hverja:

Frumkvöðla

Áhugafólk um nýsköpun

Forvitna

Íbúa á Norðurlandi

Starfsfólk og stúdenta HA

Þig!

☕ Stutt dagskrá og svo óformlegt spjall yfir kaffisopa:

🗣 Að þessu sinni fáum við til okkar góða vinkonu HA, Katrínu Árnadóttur, annan stofnanda markaðs- og ráðgjafastofunnar Komplíment.

✨ Katrín mun segja okkur frá eigin vegferð, frá starfi sem stjórnandi Markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri frá 2016-2023 og síðar sem samskiptafulltrúi hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri, yfir í að stofna sitt eigið fyrirtæki á vormánuðum 2025. Hún er með mikla og fjölbreytta reynslu á sviði samskipta og markaðsmála og mun deila með okkur hvernig þessi reynsla varð grunnurinn að nýrri frumkvöðlaleið.

💪 Þetta er saga um að þora að taka stökkið, stíga út fyrir þægindarammann og fylgja eigin draumum með dass af hugrekki og því mikilvægasta: góða félaga sem veganesti.

❤ Öll velkomin!