Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Kynningarviðburður | KLAK health heilsutæknihraðall
Gróska hugmyndahús

Kynningarviðburður | KLAK health heilsutæknihraðall

12. september kl. 12:00 - kl. 13:00 2025

KLAK - Icelandic Startups kynna nýjan viðskiptahraðal í heilsutækni, KLAK health 🚀

Viðburðurinn fer fram 12. september frá kl. 12:00 til 13:00 í Grósku.

Á viðburðinum verður kynntur fimm vikna viðskiptahraðall sem er sérsniðinn að þörfum sprotafyrirtækja í heilsutækni.

Markmið hraðalsins er að efla íslenskt heilbrigðiskerfi með því að veita þátttakendum aðgang að sérhæfðri fræðslu, leiðsögn frá sérfræðingum og sterkum tengslum við fjárfesta og lykilaðila.

Þau sem halda erindi:

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK.

Haraldur Bergvinsson, verkefnastjóri KLAK health.

Sigurður Þórarinsson, Nýsköpunar- og tæknistjóri Landspítalans.

Matthías Leifsson stofnandi Leviosa.

Viðburðurinn er opinn öllum og boðið verður upp á hádegismat.

Við hlökkum til að sjá þig 👋