TechBBQ 2025 🇩🇰
TechBBQ er stærsta frumkvöðla- og nýsköpunarráðstefna Norðurlanda og hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun árið 2013. Árið 2025 færist viðburðurinn yfir í Bella Center í Kaupmannahöfn og mun taka á móti yfir 10.000 þátttakendum úr öllum áttum – frumkvöðlum, fjárfestum, rannsakendum, nýsköpunarfyrirtækjum og stefnumótendum.
Þema ráðstefnunnar 2025 er „Build to Matter“ og snýst um að skapa lausnir og fyrirtæki sem skipta máli – með áherslu á sjálfbærni, áhrif og meðvitaða nýsköpun.
Á ráðstefnunni má búast við:
- Yfir 300 ræðumönnum af heimsmælikvarða
- Fjölmörgum sviðum og umræðum um gervigreind, líftækni, UrbanTech og sjálfbærar lausnir
- Pitch-keppnum, hraðafundum og fjárfestatengingu
- Fjölbreytileika, aðgengi og alþjóðlegt tengslanet í fyrirrúmi
- TechBBQ er fullkominn staður til að tengjast öðrum í nýsköpunarumhverfinu, læra af reyndum frumkvöðlum og finna innblástur til að byggja eitthvað sem skiptir máli.
🌐 Heimasíða: https://techbbq.dk

