Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Snjallræði - Opinn kynningarfundur
Gróska hugmyndahús

Snjallræði - Opinn kynningarfundur

13. ágúst kl. 12:00 - kl. 13:00 2025
Hýst af Snjallræði

Langar þig að hafa jákvæð áhrif á samfélagið? Viltu þróa lausnir sem skipta máli?

Snjallræði er 16 vikna vaxtarrými (e. incubator) sem styður við öflug teymi sem brenna fyrir lausnum á áskorunum samtímans og styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Komdu á opinn kynningarfund í Grósku þar sem þú færð innsýn í hvernig Snjallræði styður við þína hugmynd með stuðningi leiðandi sérfræðinga og öflugra bakhjarla.

✨ Kynning á Snjallræði – hvernig við vinnum að samfélagslegum lausnum með stuðningi reynslumikilla ráðgjafa.

🎤 Reynslusögur þátttakenda – fyrrverandi þátttakendur segja frá sinni vegferð, áskorunum og árangri.

🖊️ Undirritun samstarfssamnings bakhjarla – mikilvægur áfangi í áframhaldandi uppbyggingu Snjallræðis.

Kynningarfundinum verður streymt.

👥 Sérstakir gestir:

👉Haukur Hafsteinsson, yfirverkfræðingur hjá Marel

👉Svafa Grönfeldt, prófessor við MIT og stofnandi DesignX

👉Íris Edda Nowenstein, lektor og stofnandi Alda

Komdu og taktu þátt í samfélagi sem trúir á nýsköpun, áhrif og samvinnu!