Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Forvitnir frumkvöðlar - Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna

Forvitnir frumkvöðlar - Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna

3. júní kl. 12:00 - kl. 12:45 2025

Fræðsluhádegi landshlutasamtakanna

- Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar

Landshlutasamtökin: Austurbrú, SASS, SSNE, SSNV, SSS, SSV og Vestfjarðarstofa standa að mánaðarlegum fræðsluerindum fyrsta þriðjudag í mánuði. Fjölbreytt fræðsla í boði fyrir frumkvöðla og önnur áhugasöm um nýsköpunarsenuna. Fræðsluhádegin eru öllum opin og að kostnaðarlausu!

Erindin verða haldin á Teams og hefjast þau kl.12. Ráðgert að hvert erindi verði ekki lengra en 45 mínútur. Í kjölfar hvers erindis gefst kostur á að leggja fram spurningar.

Hér er hægt að komast inn á fyrirlestur Arnars Sigurðssonar um frumkvöðlaferlið: https://teams.microsoft.com/l/meetup-join/19%3ameeting_NmIzMTdiYTYtOTc5Mi00ZDk0LTg3MjctNDcxOTNlYzRhM2Yw%40thread.v2/0?context=%7b%22Tid%22%3a%22dcf43066-93df-4b76-8cdd-f1bbf688aa16%22%2c%22Oid%22%3a%22eafe56d9-7b51-484c-a5fb-46ca1c393fbb%22%7d

Athugið að fundurinn verður tekinn upp.

Takið frá tíma:

7. janúar – Frumkvöðlaferlið

4. febrúar – Umsóknarskrif

4. mars – Gervigreind og styrkumsóknir

1. apríl – Skapandi hugsun

6. maí – Viðskiptaáætlun á mannamáli

3. júní – Stofnun og rekstur smáfyrirtækja//ólík rekstarform

Við höldum svo áfram í september með fleiri spennandi fyrirlestra.

Hvað eru landshlutasamtökin?

Öll sveitarfélög á Íslandi eru aðilar að landshlutasamtökunum, en Landshlutasamtök sveitarfélaga eru hagsmunasamtök sveitarfélaga á tilgreindum starfssvæðum. Meginhlutverk allra landshlutasamtaka er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum.

Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)