Opnunarviðburður Nýsköpunarsetursins við Lækinn
Þér er boðið í opnunarviðburð Nýsköpunarsetursins við Lækinn.
Þriðjudaginn 27. maí frá kl. 15-17 verður því fagnað að Nýsköpunarsetrið við Lækinn opnar dyr sínar fyrir almenningi, nú í breyttri mynd.
Eins og flestir Hafnfirðingar vita þá hefur Menntasetrið við Lækinn verið starfrækt í fjölmörg ár, fyrst sem grunnskóli og nú sem bækistöð fyrir skapandi starf í hjarta Hafnarfjarðar. Áhugasömum gefst tækifæri á að koma og sjá endurbætt hús, kynnast starfseminni og upplifa margt fleira skemmtilegt.
Formleg dagskrá hefst klukkan 15:15 þar sem forstöðukona Nýsköpunarsetursins, Bryndís Steina Friðgeirsdóttir býður alla velkomna og bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, opnar húsið formlega.
Einar Sverrisson býður öll velkomin að sjáð hvernig hugmyndir verða að veruleika – lifandi sýning á töfrum 3D prentunar í Tæknismiðjunni.
Léttar veitingar í boði.
Endilega látið sjá ykkur og fagnið þessum áfanga!
---------------- English --------------------------
On Tuesday, May 27th from 3-5 p.m., the Innovation Center will open its doors to the public.
As most residents of Hafnarfjörður know, Menntasetrið við Lækinn has been in operation for many years, first as a primary school and now as a base for creative work in the heart of Hafnarfjörður. Those interested will have the opportunity to come and see the renovated building, get to know the operations and experience many other fun things.
The formal program begins at 3:15 p.m., where the director of the Innovation Center, Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, welcomes everyone and the mayor of Hafnarfjörður, Valdimar Víðisson, officially opens the building.
Light refreshments will be served.
Please come and see us and celebrate this milestone!


