Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Sprotafjárfestingar á Norðurlandi
Strandgata 1

Sprotafjárfestingar á Norðurlandi

23. maí kl. 17:00 2025

Langar þig að fjárfesta í hugviti og nýsköpun? Ertu óvss um það hvernig þú nálgast fjárfestingatækifæri og hvernig skal fara að?

Samtökin IceBAN – Íslenskir englafjárfestar bjóða þér í samtal þar sem við skoðum hvernig fjárfestar geta uppgötvað og nálgast nýsköpunarfyrirtæki í leit af fjármögnun.

Hvað förum við yfir?

- Hvað eru englafjárfestingar og hvers vegna eru þær mikilvægar í vistkerfi nýsköpunar

- Hvernig geta samtök eins og IceBAN aðstoðað þig við að uppgötva og nálgast áhugaverða frumkvöðla og möguleg fjárfestingatækifæri

- Hver eru næstu skref ef þú vilt taka þátt?

Fyrir hverja?

Erindið er ætlað núverandi og verðandi fjárfestum sem hafa áhuga á að kynna sér tækifæri í íslensku nýsköpunarumhverfi á markvissan hátt, fyrir frumkvöðla sem hafa áhuga á fjármögnun frá englafjárfestum, sem og fyrir aðra forvitna.

📅 Dagsetning: 23. maí

⏰ Tími: 17:00-19:00

🌐 Staðsetning: Drift EA, Messinn á 4. hæð, Strandgata 1 á Akureyri

😇 Erindið er hluti af lokaviðburði Norðansprotans - en þar munu 5-8 frumkvöðlar kynna hugmyndir sínar og keppa um titilinn Norðansprotinn 2025. Sjá nánar hér - https://www.facebook.com/events/1232277308515385

Ekki missa af tækifærinu til að fá innsýn frá sérfræðingum í englafjárfestingum og nýsköpun!

Strandgata 1
Drift EA - 4. hæð
Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
Drift EA
Drift EA
Hraðið
Hraðið
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri