Leitin að Norðansprotanum - Lokaviðburður
Lokaviðburður Norðansprotans verður haldinn í Messanum hjá Drift EA á Akureyri. Þar munu 5-8 nýsköpunarhetjur kynna hugmyndirnar sínar í þeirri von að vinna 1.000.000 kr. verðlaunafé sem veitt er af Upphafi fjárfestingarsjóði.
Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu.
Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, EIMS og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Upphaf fjárfestingasjóði.
Á lokaviðburðinum mun IceBAN - samtök engafjárfesta á Íslandi vera með kynningu á starfsemi sinni og fara yfir hvernig verðandi fjárfestar geta tekið fyrsta skrefið í að styðja við frumkvöðla.
Skráning á lokaviðburðinn fer fram hér:
https://www.ssne.is/is/moya/formbuilder/index/index/leitin-ad-nordansprotanum-lokavidburdur





