Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Leitin að Norðansprotanum
Norðurland

Leitin að Norðansprotanum

19. maí kl. 18:00 - 23. maí kl. 17:00 2025
Norðurland

Norðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmyndum Norðurlands. Keppnin fer fram dagana 19.-23. maí og lýkur með úrslitum sem haldin verða í Messanum hjá Drift EA. Upphaf fjárfestingasjóður mun veita verðlaunafé upp á 1.000.000 kr.

Norðansprotinn er hluti af nýsköpunarferðalagi Norðurlands sem er ætlað að vera leiðarvísir frumkvöðla frá hugmyndarstigi að fjárfestingu.

Norðansprotinn er samstarfsverkefni SSNE, SSNV, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Hólum, Drift EA, EIMS og Hraðsins með veglegum stuðningi frá Upphaf fjárfestingasjóði.

Fyrirkomulag

Skráningin er opin fyrir öll og það kostar ekkert að taka þátt.

Umsækjendur geta verið einir eða teymi.

Þú skráir þig til leiks með því að fylla út skráningarform. Skráningarformið er hér.

https://www.ssne.is/is/moya/formbuilder/index/index/nordansprotinn-2025

Í kjölfar skráningu færð þú tölvupóst með nánari upplýsingum m.a. um gerð og skil á einblöðungi sem lýsir hugmyndinni nánar.

Í framhaldinu fá 5-8 umsækjendur tækifæri til að kynna hugmyndina sína fyrir dómnefnd og gestum á lokaviðburðinum á Messanum 23. maí n.k.

Fjárfestingasjóðurinn Upphaf veitir verðlaunafé upp á 1.000.000 kr.

Norðurland
Hýst af:
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV)
Drift EA
Drift EA
Eimur
Eimur
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri