Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Lokadagur Hringiðu+
Í beinu streymi

Lokadagur Hringiðu+

7. maí kl. 11:45 2025
Í beinu streymi

Þá er komið að því 🎉

Lokadagur Hringiðu+ fer fram miðvikudaginn 7. maí n.k. og ætlum við að því tilefni að bjóða upp á beint streymi á viðburðarsíðu KLAK.is.

Þar fá áhorfendur tækifæri til að kynnast þeim kraftmiklu teymum sem hafa tekið þátt í hraðlinum og sjá afrakstur þeirrar öflugu vinnu sem þau hafa lagt á sig undanfarnar vikur.

Viðburðinum stýrir hinn eini sanni Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, og í opnunarerindi mun Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, ávarpa gesti.

Einnig mun Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK, flytja erindi.

Teymin sem kynna verkefni sín:

• Haf-Afl

• HuddleHop

• Loki Foods

• Optitog ehf.

• Svepparíkið

• Timber Recycling ehf.

• Þarahrat

Um Hringiðu+

Hringiða+ er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir. Hlutverk hraðalsins er að stuðla að því að á Íslandi dafni öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum.

Hringiða+ er haldin í samstarfi við:

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Orkuveituna, Terra, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir.

Í beinu streymi
Hýst af:
KLAK - Icelandic Startups
KLAK - Icelandic Startups
Hringiða
Hringiða