Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Hringiða - Prosecco og Pitch
Elliðaárstöð

Hringiða - Prosecco og Pitch

9. apríl kl. 17:00 - kl. 19:00 2025

Prosecco og pitch er lifandi og skemmtilegur viðburður þar sem sprotarnir sem taka þátt í Hringiðu+ kynna hugmyndir sínar á aðeins 90 sekúndum! Við fögnum þrautseigju, elju og krafti teymanna – með léttar veitingar og búbblur í hönd 🥂

Steiney Skúladóttir stýrir dagskránni og svo mun engin önnur en DJ Dóra Júlía halda uppi stuðinu þegar teymin hafa lokið sér af 🎶✨

Við hvetjum öll áhugasöm um nýsköpun, sjálfbærni og framtíðina til að mæta, mingla styðja við sprotana og eiga skemmtilega stund saman 💚

Hringiða+ er viðskiptahraðall fyrir grænar lausnir. Hlutverk hraðalsins er að stuðla að því að á Íslandi dafni öflug fyrirtæki sem byggja á hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins, skapi verðmæt og áhugaverð störf og skili árangri í umhverfis- og loftslagsmálum.

Með þátttöku í Hringiðu+ fá frumkvöðlar og sprotafyrirtæki aðgang að sérfræðingum, tengslaneti og fræðslu sem styður við vöxt þeirra og þróun. Markmið hraðalsins er að þátttakendur verði í lokin í stakk búnir til að sækja um græna styrki – bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.