Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík
Stéttin Húsavík

Krubbur - Hugmyndahraðhlaup á Húsavík

28. mars kl. 13:00 - 29. mars kl. 17:00 2025
Stéttin Húsavík

Þér er boðið að taka þátt í hugmyndahraðhlaupi!

Í Krubbi færðu þjálfun í nýsköpunarhugsun í leit að vörum og svörum við raunverulegum áskorunum í ferðaþjónustu á Húsavík. Einnig verður í boði að taka þátt í opnum flokki.

Hér skráir þú þig leiks og færð nánari upplýsingar: 👉https://www.hic.is/krubbur

Hvernig fer þetta fram?

🌱 Á tveimur dögum færðu þjálfun í aðferðum nýsköpunar til að gera hugmynd að veruleika.

🌬 Þú færð innblástur og leiðsögn til að vinna í teymi að nýjum lausnum fyrir raunverulegar áskoranir í ferðaþjónustu á Húsavík.

👥 Þú færð aðstoð frá þjálfurum og tækifæri til að kynna hugmyndina þín fyrir dómnefnd

🏆 Vegleg verðlaun í boði fyrir bestu hugmyndirnar

Hvaða áskoranir?

🔑 Lögð verður áhersla á hugmyndir að lausnum sem tengjast ferðaþjónustu og ímynd Húsavíkur. Fyrirtæki á svæðinu kynna áskoranir sínar í þeim efnum.

Takmarkanir?

🟢 Ef þú ert á aldrinum 16-99 ætti ekkert að stoppa þig

🟢 Það kostar ekkert að taka þátt

🟢 Hugmyndahraðhlaupið er fyrir öll áhugasöm um nýsköpunarfærni og/eða ferðaþjónustu.

🟢 Býrðu ekki á Húsavík? Samt velkomið að taka þátt

🟢 Mikilvægt: Það er hvorki nauðsynlegt né skylda að búa yfir ákveðinni þekkingu.

🟠 Ertu enn að hugsa um að þetta sé kannski ekki fyrir þig? Hringdu þá í Stefán Pétur verkefnastjóra Hraðsins 861-0057 og fáðu frekari upplýsingar

Hver heldur Krubb 2025 og afhverju?

Hraðið heldur Krubb í samstarfi við SSNE og HA til að efla nýsköpunarsenuna og frjóvga farveg atvinnugreina á Norðurlandi.

Sjáumst á Stéttinni!

Af hverju heitir þetta eiginlega Krubbur?

Hugmyndahraðhlaupið dregur nafn sitt af Krubbi og svokölluðu Krubbsveðri sem skapast í ákveðinni vindátt á Húsavík. Veðrinu fylgir svo mikill stormur að fólk heldur sig innan dyra meðan hann geysar. Vonast er eftir alvöru Krubbsstormi í hugum þátttakenda meðan á hlaupinu stendur!

Stéttin Húsavík
Hýst af:
Hraðið
Hraðið
Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE)