Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Frá hugmynd til framkvæmdar: Uppfinningar í háskólasamfelaginu
Háskólinn á Akureyri

Frá hugmynd til framkvæmdar: Uppfinningar í háskólasamfelaginu

27. mars kl. 09:00 - kl. 11:00 2025

💡 Öll velkomin á málþing á vegum Miðstöðvar doktorsnáms. Yfirskrift málþingsins er Frá hugmynd til framkvæmdar: Uppfinningar í háskólasamfélaginu

💥 Hefur þú hugmynd sem gæti orðið að uppfinningu? Hvað gerist næst? Hvaða leiðir eru í boði fyrir starfsfólk Háskólans á Akureyri sem hefur áhuga á að þróa nýjar lausnir og jafnvel stofna sprotafyrirtæki?

📍 Málþingið fer fram í stofu M102 og mikilvægt er að skrá sig hér:

https://www.unak.is/.../vidburdir/hugmynd-til-framkvaemdar

Sérfræðingar munu ræða um:

✅ Einkaleyfi og eignarhald uppfinninga

✅ Ferlið við stofnun sprotafyrirtækis

✅ Stuðningsúrræði og ráðgjöf

Við fáum til liðs við okkur tvo sérfræðinga á sínu sviði:

🔹 Brynja Björg Halldórsdóttir er lögfræðingur Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands og ritari Hugverkanefndar Háskóla Íslands og Landspítala. Hún mun fara yfir verklagið hjá HÍ um uppfinningar sem starfsfólk HÍ kemur með í starfi, sem og verklag utan um sprotafyrirtæki sem stofnuð eru af starfsfólki HÍ utan um slíkar uppfinningar, en HÍ á hlut í 22 slíkum félögum.

🔹 Lýður Skúli Erlendsson er vísinda- og nýsköpunarstjóri Auðnu Tæknitorgs. Hlutverk Auðnu er að aðstoða háskóla- og vísindasamfélagið við að skila uppfinningum og hagnýtum rannsóknarniðurstöðum til samfélagsins í formi lausna, verðmætasköpunar og aukinnar samkeppnishæfni. Lýður mun fara yfir þá þjónustu sem Auðna bíður upp á fyrir starfsfólk háskóla.

✨ DAGSKRÁ ✨

09:00 – Opnun málstofu

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri

09:15 – Verkefni frumkvöðla og nýsköpunar í háskólanum

Svava Björk Ólafsdóttir

09:25 – Hvernig styður Auðna háskólasamfélagið?

Lýður Skúli Erlendsson

10:10 – Kaffihlé

10:20 – Verklag Háskóla Íslands um uppfinningar starfsmanna

Brynja Björg Halldórsdóttir

11:05 – Opið spjall & Q&A með sérfræðingum

🥰 Viltu fá persónulega ráðgjöf?

Eftir hádegi geta stúdentar og starfsfólk bókað fundi með Brynju og Lýði.

📌 Skráning í viðtöl: Sendu tölvupóst á Svövu Björk verkefnastjóra frumkvöðla og nýsköpunar á netfangið svava@unak.is

❤ Ekki missa af þessu ef þú vilt breyta góðri hugmynd í veruleika! Öll velkomin.