Verkstæði: Hönnum hús 🐦
VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í ELLIÐAÁRSTÖÐ
🛠 Fjölskyldusmiðja þar sem við hönnum og smíðum fuglahús 🛠
Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 6-12 ára og foreldrum þeirra á Verkstæði Hugmyndasmiða í Rafstöðinni í Elliðaárstöð. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið verður með endurnýttan efnivið sem við björgum til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir. Þema smiðjunnar eru fuglahús 🐦
Dagskrá vetrarins á laugardögum á Verkstæðinu💡
📅 15. febrúar kl. 10-12 – Hönnum hús
📅 1. mars kl. 10-12 – Skógarverur lifna við
📅 15. mars kl. 10-12 – Leikur að vindi
📅 29. mars kl. 10-12 – Höfum hátt
📅 26. apríl kl. 10-12 – Skógarverur lifna við
📅 10. maí kl. 10-12 – Leikur að vindi
📅 24. maí kl. 10-12 – Hönnum hús
📌 Skráning á heimasíðu Elliðaárstöðvar - takmarkaður fjöldi kemst að í hverja smiðju.
3000 kr fyrir einn skapandi krakka
15% afsláttur fyrir systkini
Frítt fyrir fullorðna fylgifiska
Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði 💡
Verkstæðið er samstarfsverkefni Hugmyndasmiða, Elliðaárstöðvar, Terra, Sorpu og Byko.

