Toppurinn: "Frá Akureyri í Hollywood - Baldvin Z deilir ...
Drift EA býður ykkur velkomin á fyrsta viðburð í fyrirlestraröðinni "Toppurinn" í Messanum hjá Drift EA. Gestur okkar að þessu sinni er hinn margverðlaunaði kvikmyndaleikstjóri Baldvin Zophoníasson (Baldvin Z).
Baldvin mun deila með okkur sinni einstöku vegferð frá því að vera í upptökumálum á Aksjón á Akureyri í það að verða í fremstu röð íslenskra kvikmyndagerðarmanna. Hann er þekktur fyrir verk eins og Órói, Vonarstræti, Lof mér að falla og sjónvarpsþættina Rétt, Ófærð og Svörtu sanda.
Komið og hlýðið á reynslusögu eins fremsta leikstjóra þjóðarinnar um áskoranir, sigra og næstu skref á ferli hans.
Viðburðurinn fer fram í Messanum í Drift EA og er öllum opinn án endurgjalds. Léttar veitingar í fljótandi formi verða til sölu á staðnum.
Skráning á viðburðinn er hér (takmörkuð sæti í boði):
https://driftea.notion.site/19170f5b7efe81ac819bf9590434cbe8

