Verkstæði: Höfum hátt 🎶
VERKSTÆÐI HUGMYNDASMIÐA Í ELLIÐAÁRSTÖÐ
🥁 Fjölskyldusmiðja þar sem við hönnum og smíðum hljóðfæri 🎺
Ninna hugmyndasmiður tekur á móti skapandi krökkum á aldrinum 6-12 ára og foreldrum þeirra á Verkstæði Hugmyndasmiða í Rafstöðinni í Elliðaárstöð. Þátttakendur fá tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn og efla samvinnu fjölskyldunnar. Unnið verður með endurnýttan efnivið sem við björgum til að skapa eitthvað alveg nýtt og spennandi í gegnum smíðar, leiki, föndur, tilraunir og prófanir. Þema smiðjunnar er tónlist og hljóðfæri 🎶
Dagskrá vetrarins á Verkstæðinu💡
Laugardaginn 1. febrúar kl. 10-12 – Höfum hátt
Laugardaginn 15. febrúar kl. 10-12 – Hönnum hús
Laugardaginn 1. mars kl. 10-12 – Skógarverur lifna við
Laugardaginn 15. mars kl. 10-12 – Leikur að vindi
Laugardaginn 29. mars kl. 10-12 – Höfum hátt
Laugardaginn 26. apríl kl. 10-12 – Skógarverur lifna við
Laugardaginn 10. maí kl. 10-12 – Leikur að vindi
Laugardaginn 24. maí kl. 10-12 – Hönnum hús
Skráning á heimasíðu Elliðaárstöðvar - takmarkaður fjöldi kemst að í hverja smiðju.
3000 kr fyrir einn skapandi krakka
15% afsláttur fyrir systkini
Frítt fyrir fullorðna fylgifiska
Hlökkum til að sjá unga hugmyndasmiði 💡
