Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Gulleggið er fyrir öll og ömmu þeirra!
Gróska hugmyndahús

Gulleggið er fyrir öll og ömmu þeirra!

10. janúar kl. 16:00 - kl. 18:00 2025

Vissir þú að Gulleggið er opið öllum og ömmum þeirra? 💡

Þann 10. janúar ætlum við að halda viðburð í Gróðurhúsinu í Grósku fyrir öll sem hafa áhuga á Gullegginu en eru ekki í háskóla, enda er Gulleggið opið öllum! Það er hægt að skrá sig í Masterclass Gulleggsins til miðnættis 24. janúar 🚀

Keppnin verður kynnt ásamt því að KLAK-teymið verður á svæðinu til að taka á móti áhugasömum í spjall og svara spurningum um Gulleggið.

Gulleggið er stærsta frumkvöðlakeppni landsins og hefur verið haldin af KLAK Icelandic Startups síðan 2008.

Það þarf ekki að skrá sig á viðburðinn, endilega mætið og við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

📍Staðsetning: Gróðurhúsið, á 2. hæð í Grósku við Bjargargötu 1.

🗓️Dagsetning: 10. janúar

Skráning í Gulleggið er hafin og við hvetjum öll sem liggja á hugmynd (eða eru án hugmyndar!) til að skrá sig! Þú getur skráð þig í Gulleggið á https://gulleggid.is