Ratsjáin 2025 - kynningarfundur #2
Ratsjáin fer af stað í janúar 2025!
Skráning á kynningarviðburð 👉 https://shorturl.at/Kl5II
Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka hæfni sína og getu í rekstri. Umsóknarfrestur er 17. janúar og verkefnið hefst með "Kick off" kynningarfundi fyrir þátttakendur 15. janúar í Reykjavík í Ferðaþjónustuvikunni. Ratsjáin hefst svo formlega 28. janúar og lýkur 3. apríl með lokaviðburði á Akureyri.
Íslenski ferðaklasinn hefur gert samning við Menningar- og viðskiptaráðuneytið um að nýta Ratsjánna í þeim tilgangi að efla fyrirtæki í ferðaþjónustu í átt að aukinni sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu. Samningurinn er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda til að innleiða stefnu og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu sem gengur út á að vera leiðandi í sjálfbærri þróun.
Dagskráin er miðuð að sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu (e. sustainable and regenerative tourism) og samanstendur af 5 lotum. Þátttakendur fá aðgang að fræðslu og verkefnum inni á lokuðu vinnusvæði Ratsjánnar og vinnustofum á netinu þar sem markmiðið er að fá jafningjarýni, endurgjöf og umræður í hópum.
Grunnstef og hugmyndafræði Ratsjánnar gengur útá að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í íslenskri ferðaþjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið og er framkvæmdaaðili en Svava Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í nýsköpun og stofnandi RATA, hefur verið ráðin verkefnastjóri.
Þátttökugjald í Ratsjána í upphafi árs 2025 er 15.000 kr á fyrirtæki. Hægt er að nýta starfsmenntasjóði á móti greiðslu.


