Gulleggs fögnuður
Gulleggs fögnuður - Nýr verðlaunagripur Gulleggsins kynntur!
Verið velkomin í Grósku þann 17. desember n.k. þar sem nýr verðlaunagripur Gulleggsins verður kynntur.
Við höfum fengið Héðinn, einn af bakhjörlum keppninnar, til þess að hanna og framleiða nýjan verðlaunagrip fyrir Gulleggið. Af þessu tilefni höfum við boðið öllum fyrrum sigurvegurum Gulleggsins að koma og taka á móti sínu eintaki.
Viðburðurinn verður haldinn hér á fyrstu hæð í Grósku þriðjudaginn 17. desember milli kl. 16:00 og 18:00.
Þetta er frábært tækifæri fyrir nýsköpunarsamfélagið til þess að koma saman, skála fyrir árinu sem er að líða og hitta sigurvegara Gulleggsins. Þetta er einnig tækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að taka þátt í Gullegginu til þess að kynna sér það betur.
Boðið verður upp á drykki, léttar veitingar og bara almenn skemmtilegheit!
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll 17. des!

