Strandgata 1
🎉Opnum dyrnar að nýju frumkvöðlasetri á Akureyri! 🚀
14. desember kl. 13:00 - kl. 17:00 2024
Hýst af Drift EA
🎉Opnum dyrnar að nýju frumkvöðlasetri á Akureyri! 🚀
Komdu og kynntu þér Drift EA - nýja og spennandi miðstöð nýsköpunar í hjarta Akureyrar að Strandgötu 1.
Við opnum dyrnar laugardaginn 14. desember kl. 13:00-17:00 samhliða jólamarkaðinum á Ráðhústorgi og bjóðum þér að skoða glæsilega aðstöðu okkar og kynna þér það sem við höfum upp á að bjóða.
Hjá Drift EA munu frumkvöðlar og sprotafyrirtæki fá:
· Ráðgjöf og aðstoð við fjármögnun
· Glæsilega vinnuaðstöðu
· Aðgang að öflugu tengslaneti
Við bjóðum upp á léttar veitingar í jólalegri stemningu.
Taktu þátt í að móta framtíð nýsköpunar á Norðurlandi!

