Fara beint í efnið
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Nýsköpun á ÍslandiSkapa.is
Kynningarfundur um frumkvöðlahraðal HÍ - AWE
Gróska hugmyndahús

Kynningarfundur um frumkvöðlahraðal HÍ - AWE

21. nóvember kl. 16:30 - kl. 17:30 2024

Kynningarfundur um frumkvöðlahraðal HÍ – AWE- verður haldinn 21. nóvember nk. kl. 16:30.

Á fundinum verður farið yfir hvað felst í þátttöku í hraðlinum, hvernig hann fer fram og hvenær, hvaða stuðningur verður í boði í gegnum hraðalinn auk þess sem farið verður yfir öll praktísk atriði sem tengjast frumkvöðlahraðli HÍ- AWE.

Fundurinn verður í Fenjamýri í Grósku en hann verður einnig tekinn upp á TEAMS fyrir þær sem eiga ekki heimangengt og verður slóð sett inn á vefinn www.awe.hi.is eftir fundinn.

Virkjum nýsköpunar- og frumkvöðlakraft kvenna!

Dagskrá fundar verður auglýst nánar síðar en meðal dagskrárliða verða:

👉 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, ávarpar gesti

👉 Fulltrúi sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi, ávarpar gesti

👉 Mentorar hraðalsins og frumkvöðlarnir Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch og Fida Abu Libdeh fara yfir dagskrá frumkvöðlahraðalsins og hagnýt mál sem tengjast þátttöku í honum

👉 Fyrrum þátttakandi í AWE hraðlinum deilir reynslu sinni

👉 Eftir fundinn geta viðstaddir spurt spurninga og fengið svör.

Hraðallinn er haldinn í samvinnu Sendiráð Bandaríkjanna. Aðrir samstarfsaðilar hraðalsins eru Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) og Samtök kvenna af erlendum uppruna.

Nánari upplýsingar á www.awe.hi.is